CARPRO Reset – Hlutlaus bílasápa (þykkni)
CarPro Reset Öflug pH hlutlaus sápa með nanotækni sem menn líkja við sápur á basísku leveli (sterkari gerðir af sápum) sem vinnur hratt á óhreinindum án þess að skaða undirlagið.
Inniheldur lubricant (sleipiefni) til að gera þvottinn öruggan þegar hanskinn rennur eftir lakkinu.
Hentar vel sem pre-wash sápa líka, en aðallega þó notuð til að þvo bílinn uppúr með þvottahanskanum.
Notkunarleiðbeiningar:
Kraftsmúlið bílinn með háþrýstidælu áður
Pro tip: Pre-wash’a bílinn með CARPRO LIFT í froðubyssu áður, kraftsmúla svo
Settu 2-3 tappa af sápunni í fötu og þrífðu með þvottahanskanum eins og þú ert vanur.
Pro tip: 2-3 tappar í fötu OG LÍKA freyða Reset með froðubyssu yfir bílinn, þvo svo með þvottahanskanum
Skola sápu niður og þurrka svo með þurrkhandklæði.
Blöndunarleiðbeiningar:
1:9 (sterkari) fyrir freyðibyssu
1:20 (hefðbundið) fyrir freyðibyssu
1:500 (mjög milt) fyrir freyðibyssu fyrir hagkvæma nýtingu
.
1:9 fyrir brúsa með pumpu, ef þú vilt sprauta sápunni á bílinn úr brúsa og nota þvottahanska svo